

Líftæknilyfjahliðstæður og sjálfbærni
Hvað er líftæknilyf?
Eins og nafnið bendir til eru líftæknilyf framleidd með aðferðum líftækninnar í lifandi kerfum, til að mynda í frumum úr spendýrum. Þetta eru stórar, flóknar sameindir og lyfin eru yfirleitt í fljótandi formi gefin með sprautu eða inndælingu. Til þess að greina eiginleika þessara lyfjasameinda þarf að beita háþróuðum prófunum á rannsóknarstofu. Hefðbundin lyf eru hins vegar yfirleitt efnafræðilega mynduð, litlar sameindir sem er auðveldara að greina og prófa. Þau eru yfirleitt gefin í pillum eða hylkjum.
Nýsköpun og framfarir í líftæknilyfjum eru afrakstur framsækinna rannsókna undanfarna áratugi. Lyfin hafa þegar leitt til byltingar á meðferð við mörgum langvinnum sjúkdómum. Líftæknilyf hafa þannig haft veruleg jákvæð áhrif á lífsgæði sjúklinga með sjúkdóma svo sem liðagigt, Crohns-sjúkdóminn, MS-sjúkdóminn og ellihrörnun í augnbotnum. Í krabbameinslækningum hafa lífslíkur sjúklinga með tilteknar tegundir krabbameins aukist verulega, að hluta til vegna framfara í þróun líftæknilyfja.1
Líftæknilyf eru gerð til að framkalla tiltekna svörun í líkama sjúklingsins. Lyfin eiga að vera sértæk og með því aukast líkurnar á því að þau hafi tilætluð áhrif. Öryggi og þolanleiki verður einnig betri þegar lyfin eru sértæk og virkni þeirra markviss. Þrátt fyrir að þróun líftæknilyfja sé kostnaðarsöm hefur góður árangur af notkun þeirra leitt til þess að meira fé fer nú til rannsókna og þróunar nýrra líftæknilyfja en hefðbundinna lyfja. Kostnaðurinn við að kaupa líftæknilyf getur þó einnig sligað heilbrigðistryggingakerfi.2 Sem dæmi má nefna að þótt innan við 2% sjúklinga í Bandaríkjunum hafi aðgang að líftæknilyfjum og öðrum háþróuðum lyfjum má rekja meira en helming heildarkostnaðar við notkun lyfja til þeirra.3
Hvað eru líftæknilyfjahliðstæður?
Líftæknilyfjahliðstæða er líftæknilyf sem er afar svipað, hliðstætt, frumlyfinu þannig að enginn marktækur munur er á klínískri virkni lyfjanna. Hliðstæður eru líkt og líftæknifrumlyfin framleiddar í lifandi kerfum. Samanborið við þróun hefðbundinna samheitalyfja krefst þróun og framleiðsla hliðstæðna líftæknilyfja fjölþættari þekkingar og sérhæfðrar tækni til greiningar og vinnslu. Þótt töluvert flóknara sé að þróa líftæknilyfjahliðstæður en samheitalyf er kostnaðurinn þó minni en við þróun á frumlyfjunum og ferlið nokkru styttra. Þannig eru hliðstæðulyf að jafnaði ódýrari en samsvarandi líftæknilyf, sem er til mikilla hagsbóta fyrir þá sem greiða fyrir lyfin.

Hvernig stuðla líftæknilyfjahliðstæður að sjálfbærni?
Líftæknilyfjahliðstæður eru hagkvæmari valkostur fyrir heilbrigðiskerfi, greiðendur og sjúklinga en frumlyf þeirra. Með hliðstæðum eykst aðgengi að líftæknilyfjum fyrir sjúklinga sem hefðu annars ekki kost á að nota þau. Hátt verð á líftæknilyfjum, þar sem árlegur kostnaður getur stundum farið yfir 100.000 bandaríkjadali á hvern sjúkling, þýðir að þessi lyf eru ekki tiltæk fyrir meirihluta jarðarbúa, sem enn treysta á meðferð með hefðbundnum lyfjum við ýmsum langvinnum sjúkdómum þar sem líftæknilyf gætu verið mun árangursríkari. 4 Í Brasilíu og Mexíkó býðst til að mynda um það bil 40% sjúklinga með krabbameinsæxli sem væri hægt að meðhöndla með líftæknilyfjum ekki viðeigandi meðferð.5
Stórstígar framfarir hafa orðið í læknisfræði fyrir tilstuðlan líftæknilyfja. Hliðstæður skapa ný tækifæri fyrir greiðendur heilbrigðiskostnaðar, lækka útgjöld og auka aðgengi. Þegar sannreynd meðferð er til staðar teljum við að hún eigi að vera aðgengileg öllum þeim sem þurfa á henni að halda. Með því að lækka kostnað á þrautreyndum meðferðum getum við aukið sjálfbærni heilbrigðisþjónustu og losað um fjármagn til rannsókna og þróunar á nýjum frumlyfjum. Við lítum þannig á að hliðstæður auki ekki aðeins aðgengi að líftæknilyfjum heldur stuðli að meiri nýsköpun á þessu sviði.
Falzone L, Salomone S, Libra M. Evolution of Cancer Pharmacological Treatments at the Turn of the Third Millennium. Frontiers in Pharmacology. 2018 ;9:1300. DOI: 10.3389/fphar.2018.01300. PMID: 30483135; PMCID: PMC6243123.
IQVIA: Global Trends in R&D 2021
https://www.evernorth.com/articles/specialty-drug-trends-and-utilization
McKinsey & Company, “What’s next for biosimilars in emerging markets”