

Gakktu til liðs við okkur
Hér hjá Alvotech viljum við að starfsfólk brenni fyrir starfi sínu og takist á við spennandi og mikilvæg verkefni. Þess vegna erum við stolt af fyrirtækjamenningunni okkar, markmiðinu sem býr þar að baki og vísindunum sem við fjárfestum í. Við fáum innblástur hvert frá öðru og frá starfi okkar með fjölbreyttum hópi sérfræðinga í líftæknilyfjahliðstæðum við að auka aðgang að líftæknilyfjum á viðráðanlegu verði og stuðla þannig að auknum lífsgæðum. Ef til er sannreynt líftæknilyf viljum við að það sé aðgengilegt öllum sjúklingum sem þurfa á því að halda.
Við erum með gefandi, sveigjanlegt og skilvirkt skipulag sem gerir starfsmönnum kleift að axla ábyrgð og leggja sitt af mörkum til að við náum sameiginlegum árangri. Við höfum alltaf áhuga á að tala við ástríðufulla og reynda einstaklinga. Vilt þú verða hluti af sívaxandi teymi?
Starfsfólkið okkar





Lífið hjá Alvotech
Þótt við séum frá ýmsum löndum og með ólíkan menningarlegan bakgrunn erum við eitt teymi sem vinnur að því að búa til eitthvað spennandi saman. Við erum stolt af því sem við gerum og hvernig við gerum það því við vitum að fyrsta skrefið í því að sýna umhyggju og breyta lífi fólks um allan heim til hins betra felst í því að vera stolt hvert af öðru og vita að skilningur, virðing og samstarf eru undirstaðan að framlagi okkar sem einstaklinga og hóps.
Fjölbreytni og inngilding eru órjúfanlegur hluti af menningu okkar. Á öllum sviðum fyrirtækisins er lögð áhersla á að leysa úr læðingi kraft starfsfólksins, svo við getum notið góðs af sjónarmiðum og hugmyndum hvers starfsmanns.

Áhersla á jafnrétti
Við erum stolt af því að hafa fengið vottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85. Vottunin staðfestir að við vinnum markvisst gegn launamun kynjanna og stuðlum að kynjajafnrétti ekki aðeins meðal starfsfólks okkar á Íslandi heldur um allan heim, óháð staðsetningu. Við tryggjum að ákvarðanir um kjör séu byggðar á hlutlægum sjónarmiðum án kynbundinnar mismununar.

Aðvörun gegn svikastarfsemi
Alvotech varar við samskiptum eða tilboðum sem gefa ranglega í skyn að þau séu frá Alvotech eða að aðilar bjóði upp á starfsnám, ráðningar eða viðskiptatækifæri fyrir hönd Alvotech. Alvotech hvetur umsækjendur og aðra sem fá slík skilaboð til að sannreyna áreiðanleika þeirra áður en brugðist er við.
Hunsa skal rafræn skilaboð ef þau koma ekki frá netföngum sem enda á @alvotech.com. Alvotech tekur aldrei gjald á neinu stigi ráðningarferlisins – hvorki við umsókn eða viðtal né síðar á ferlinu.
Alvotech biður aldrei um bankaupplýsingar umsækjenda í ráðningarferlinu, öllum slíkum beiðnum ber að hafna. Grunsamleg skilaboð sem virðast koma frá eða fyrir hönd Alvotech skulu tilkynnt með því að smella á 'hafa samband' sem er einnig að finna í valblaðinu á þessari síðu. Einnig má tilkynna hugsanlega svikastarfsemi til lögreglu.
Hafið samband ef þið eruð í einhverjum vafa um hvort tilboð um starfsnám, starf eða viðskiptatækifæri sé hluti af svikasamskiptum eða raunverulegt tilboð frá Alvotech.