

Menningin okkar
Hjá Alvotech sérhæfum við okkur í líftæknilyfjahliðstæðum og við elskum þetta starf. Við erum hópur fagmanna sem búa og starfa í mörgum löndum en eigum það sameiginlegt að vilja auka aðgengi að hagkvæmum líftæknilyfjum og bæta þannig lífsgæði f fólks um allan heim.
Það eru þessi markmið og menning sem sameinar okkur. Hjá okkur verður til suðupottur fjölbreyttrar sérfræðiþekkingar sem leysir úr læðingi hugvitið, snerpuna og drifkraftinn sem við þurfum til að ná settu marki.
Við njótum krafta starfsfólks sem er öflugt, áhugasamt og ástríðufullt. Fjölbreytnin í hópnum endurspeglar þau mörgu markaðssvæði sem við þjónum. Liðsheildin er miklu stærri en summa einstakra hluta hennar.
Við leiðum saman snillinga á mörgum sviðum og fjárfestum bæði í þekkingu og fólki til að ná sem bestum árangri fyrir samstarfsaðila okkar og sjúklinga um allan heim.
Gildin okkar
Samvinna er grunnþáttur í menningu okkar: að leika saman sem ein liðsheild, með óþrjótandi metnaði til að skila árangri, á réttum tíma og að takast það í fyrstu tilraun. Við leitum réttra lausna af ástríðu og þrautseigju um leið og við tökum breytingum fegins hendi. Við gætum þess að fagna sameiginlegum sigrum og hampa persónulegum árangri. Gildin okkar birtast í „leikreglunum fimm“, sem eru meginreglur í samskiptum innan hópsins.
Traust
Við höfum trú á áreiðanleika annarra og viljum skapa menningu sem byggist á trausti og öryggi.
Hlustun
Við hlustum af athygli, kunnum að meta önnur sjónarmið og erum síforvitin.
Virðing
Við stundum opin og heiðarleg samskipti og svörum af einlægni.
Jákvæðni
Við temjum okkur jákvætt hugarfar, erum drífandi og full af eldmóði.
Eitt teymi
Við leggjum áherslu á góða samvinnu, fögnum sameiginlegum árangri og kunnum að meta fjölbreytileika hópsins.