Svör við algengum spurningum

Alvotech h.f. var stofnað árið 2013. Markmið félagsins er að þróa og framleiða hliðstæður líftæknilyfja fyrir sjúklinga um allan heim.

Höfustöðvar Alvotech og miðstöð rannsókna og framleiðslu eru við Sæmundargötu 15-19, 102 Reykjavík.

Upplýsingar um meðlimi stjórnar Alvotech er að finna á sérstakri síðu (link).

Upplýsingar um meðlimi framkvæmdastjórnar Alvotech er að finna á sérstakri síðu (link).

Nánar upplýsingar um þróun Alvotech á líftæknilyfjahliðstæðum er að finna á þessari síðu (link).

Hlutabréf félagsins eru skráð til viðskipta á þremur mörkuðum, Nasdaq mörkuðunum í Bandaríkjunum (ALVO), á Íslandi (ALVO) og í Svíþjóð (ALVO-SDB).

Móðurfélag samstæðunnar, Alvotech S.A., varð til við samruna við sérhæfða samrunafélagið Oaktree Acquisition Corp II þann 15. júní 2022 og hófust viðskipti með hlutabréf félagsins á Nasdaq markaðnum í Bandaríkjunum næsta dag, en í Nasdaq kauphöllinni í Reykjavík viku síðar, 22. júní 2022.

Þeir sem hyggjast kaupa hlut í félaginu geta haft samband viðskiptabanka sinn eða aðra skráða miðlara á hlutabréfamarkaði.

Alvotech greiðir ekki arð að svo stöddu.

Árshlutareikningar og ársreikningar félagsins, ásamt öðrum upplýsingum sem birtar eru ársfjórðungslega er að finna undir liðnum fjárhagsupplýsingar á vefsíðunni (link). Við leggjum einnig inn skjöl til birtingar hjá Verðbréfaeftirliti Bandaríkjanna (SEC) og er þau að finna undir liðinum 'SEC filings' hér á heimasíðunni (link) eða á EDGAR vefsetri verðbréfaeftirlitsins í Bandaríkjunum. Aðrar upplýsingar sem við leggjum inn til birtingar er einnig að finna undir liðinum "Public Company Filings" (link).

Allar fréttatilkynningar félagsins eru birtar undir liðnum 'Fréttir' á heimasíðunni (link). Þar er að finna bæði enskar og íslenskar útgáfur tilkynninganna.

Sendu póst á almannatengslafulltrúa félagsins. Póstfangið er alvotech.media@alvotech.com.

Sendu póst til fjárfestatengla félagsins. Póstfangið er alvotech.ir@alvotech.com.