Heilbrigðari heimur með líftæknilyfjum á viðráðanlegu verði


Um okkur
Við erum afar stolt af þeim jákvæðu áhrifum sem líftæknilyf og hliðstæður þeirra hafa haft á heilbrigðisþjónustu. Líftæknilyf hafa gjörbylt því hvernig við meðhöndlum sjúkdóma og bætum líf sjúklinga. Má þar nefna allt frá insúlíni og bóluefnum til krabbameinsmeðferðar með einstofna mótefnum. Markmið okkar er að auka aðgengi sjúklinga um allan heim að mikilvægum líftæknilyfjum með því að þróa og framleiða fyrsta flokks hliðstæður á samkeppnishæfu verði.
Skuldbinding okkar um að leysa kraft líftæknilyfjahliðstæðna úr læðingi er undirstaða nálgunar okkar, menningar og einbeitts vilja til að vinna betur og hraðar að þessu markmiði. Við erum knúin áfram af ástríðu. Ef til er sannreynt líftæknilyf viljum við að það sé aðgengilegt öllum sjúklingum sem þurfa á því að halda.
Þetta er Alvotech
