Betra aðgengi Betra líf
Líftæknifyrirtækið Alvotech var stofnað árið 2013 og hefur það að markmiði að auka aðgengi sjúklinga um allan heim að hágæða líftæknilyfjum, lækka lyfjaverð og auka lífsgæði.


Alvotech og Advanz Pharma fyrst til að sækja um markaðsleyfi fyrir hliðstæðu við augnlyfið Eylea í háum styrk
Alvotech semur við LOTTE Biologics í Syracuse í Bandaríkjunum um framleiðslu á líftæknilyfjahliðstæðum og eykur þannig framleiðslugetu sína
Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) veitir viðbótarleyfi fyrir framleiðslu á hliðstæðunni við Humira í báðum framleiðslueiningum lyfjaverksmiðju Alvotech í Reykjavík
Um okkur
Við sérhæfum okkur í framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja til þess að auka aðgang að líftæknilyfjum á viðráðanlegu verði og stuðla þannig að auknum lífsgæðum. Við vinnum að skýru markmiði og erum ástríðufull fyrir því sem við gerum.

Okkar nálgun
Við trúum því að með lóðréttri samþættingu, allt frá frumulínuþróun til endanlegs frágangs og pökkunar, öðlumst við stjórnina, umfangið og hraðann sem við þurfum til að takast áætlunarverk okkar. Við einblínum á það sem við gerum best en reiðum okkur á sérþekkingu samstarfsaðila okkar þegar kemur að sölu og markaðssetningu.

Lyf - frá þróun til markaðar
Við höfum einsett okkur að þróa og framleiða fyrsta flokks líftæknihliðstæðulyf á samkeppnishæfu verði. Við leitum stöðugt leiða til að efla rannsóknir og vöruþróun til þess að geta boðið sjúklingum um allan heim öflugt úrval líftæknilyfja.
