Alvotech kemur fram á fjórum fjárfestaráðstefnum í nóvember

Fyrirtækjafréttir
02 nóvember 2026

Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) kemur fram á fjórum alþjóðlegum fjárfestaráðstefnum í nóvember, í Bretlandi, Noregi og Svíþjóð.

  • Alþjóðleg líftækniráðstefna UBS í London – samtal við greinanda bankans, þriðjudaginn 17. nóvember kl. 14:00
  • Alþjóðleg heilbrigðisráðstefna Jefferies 2026 í London – kynning, miðvikudaginn 18. nóvember kl. 14:30
  • Heilbrigðisráðstefna DNB Carnegie í Osló – samtal við greinanda bankans, þriðjudaginn 24. nóvember kl. 12:20
  • Heilbrigðisráðstefna SEB í Stokkhólmi – samtal við greinanda bankans, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 9:40

Hlekki á bein streymi er að finna á síðunni „Viðburðir og kynningar“: https://www.alvotech.com/is/vidburdir undir liðnum 2026 Q4. Þá verður hægt að hlýða á upptökur af fundunum í allt að 90 daga eftir að ráðstefnunni lýkur.

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com

Um Alvotech
Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Fimm hliðstæður eru þegar á markaði víðsvegar um heim, við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Simponi (golimumab), Eylea (aflibercept) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur Alvotech meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech. Einnig má fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube.