Fjárfestar

Stjórnarhættir

Alvotech gerir strangar kröfur til allra starfsmanna og stjórnarmanna félagsins. Þar gegna traust fyrirtækjastefna og siðareglur félagsins höfuðmáli. Hlutverk stjórnar er að fara með hagsmunagæslu fyrir hluthafa og hafa eftirlit með rekstri fyrirtækisins. Til að standa við þessa ábyrgð ber stjórn að fylgja þeim verklagsreglum og stöðlum sem finna má í leiðbeiningum og reglum sem eru aðgengileg hér á vef félagsins. Þessi skjöl geta tekið breytingum eftir því sem stjórnin telur best fyrir hagsmuni Alvotech eða samkvæmt kröfum laga og reglugerða um starfsemi félagsins.

Alvotech fylgir einnig siðferðilegum skuldbindingum á öllum sviðum starfsemi félagsins bæði gagnvart starfsfólki okkar og verktökum, birgjum, samstarfsaðilum, opinberum aðilum og samfélaginu. Þessar skuldbindingar eru útskýrðar í siðareglum Alvotech, sem gilda fyrir alla starfsmenn, þar á meðal æðstu stjórnendur, stjórnendur og stjórnarmenn. Við beitum siðareglunum bæði í innra starfi og í utanaðkomandi samskiptum og kjósum að eiga í viðskiptum við aðila sem fylgja sambærilegum siðferðilegum viðmiðum.

Alvotech stjórnendateymi