Alvotech mun áfrýja bráðabirgðalögbanni í Bandaríkjunum vegna AVT05

Fyrirtækjafréttir
26 nóvember 2026


  • Alvotech mun áfrýja bráðabirgðalögbanninu og óska eftir flýtimeðferð

  • Lögbannið varðar eitt einkaleyfi á framleiðsluferli sem Alvotech telur sig ekki brjóta gegn og er félagið því fullvisst um að hafa betur í áfrýjunarferlinu

  • Alvotech gerir enn ráð fyrir að AVT05 verði ein af fyrstu hliðstæðunum við Simponi í Bandaríkjunum

  • Staða pantana og eftirspurn eftir lyfjum Alvotech er mjög sterk og er félagið því áfram bjartsýnt á vaxtarhorfurnar

REYKJAVÍK (26. nóvember 2026) - Alvotech (NASDAQ: ALVO; ALVO-SDB), tilkynnti í dag að fylkisréttur í Virginíufylki hefði fallist á beiðni lyfjafyrirtækisins Janssen um lögbann til bráðabirgða í tengslum við AVT05, fyrirhugaða hliðstæðu við Simponi® og Simponi Aria® (golimumab). Dómstóllinn fyrirskipaði einnig Janssen að leggja fram tryggingu til að mæta því tjóni sem Alvotech kann að verða fyrir ef Janssen tapar málaferlum sem varða einkaleyfadeilu fyrirtækjanna og þar með er sýnt fram á að lögbannið hafi verið óréttmætt. Fjárhæð tryggingarinnar er í samræmi við þá fjárhæð sem ákveðin var í sambærilegu máli í Bandaríkjunum.

Bráðabirgðalögbannið varðar eitt bandarískt einkaleyfi nr. 10.421.986, sem lýtur að síunarferli í framleiðslu. Einkaleyfið nær hvorki til lyfjasameindarinnar golimumab né þeirrar aðferðar sem beitt er við framleiðslu á henni.

Alvotech mun áfrýja dómi fylkisréttarins til landsréttar (e. U.S. Court of Appeals for the Federal Circuit) og óska eftir flýtimeðferð. Félagið er fullvisst um að framleiðsluferli þess brjóti ekki gegn umræddu einkaleyfi og að einkaleyfið sé ógilt með vísan til áður þekktrar tækni.

Staða pantana á lyfjum Alvotech er enn sterk. Félagið er sem fyrr bjartsýnt á vaxtarhorfurnar og vinnur að því að auka framboð til að mæta eftirspurn eftir þeim vörum sem eru á markaði.

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech framleiðir og markaðssetur fimm líftæknilyfjahliðstæður, hliðstæðu við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Eylea (aflibercept), Simponi (golimumab) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur félagið að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem m.a. geta nýst sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, blóðsjúkdóma eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech, á fjárfestasíðu okkar og á almennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn, Facebook, Instagram, X og YouTube.

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com