Alvotech selur breytanleg skuldabréf í lokuðu útboði

Fyrirtækjafréttir
24 júlí 2023

TILKYNNING ÞESSI ER EINGÖNGU TIL BIRTINGAR Á ÍSLANDI OG FJALLAR UM LOKAÐ ÚTBOÐ Á VERÐBRÉFUM SEM EINGÖNGU BEINIST AÐ HÆFUM FJÁRFESTUM. ÞESSI TILKYNNING AÐ HLUTA EÐA Í HEILD ER EKKI ÆTLUÐ TIL BIRTINGAR Í BANDARÍKJUNUM EÐA ÖÐRUM RÍKJUM ÞAR SEM BIRTING HENNAR GÆTI VERIÐ ÓHEIMIL. EINNIG ER VÍSAÐ Í ÍTARLEGRI FYRIRVARA Í ENSKRI ÚTGÁFU TILKYNNINGARINNAR.

Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag um lokað útboð til hæfra fjárfesta á víkjandi skuldabréfum með breytirétti yfir í almenn hlutabréf. Alls verða í boði skuldabréf í íslenskum krónum eða Bandaríkjadollurum að andvirði að minnsta kosti 100 milljónir Bandaríkjadollara, eða um 13 milljarðar íslenskra króna á núverandi gengi.

Fyrirhugað er að Alvotech gefi út ný skuldabréf í áður útgefnum flokki, með útgáfudag 20. desember 2022 og lokagjalddaga 20. desember 2025. Útgáfurammi flokksins, sem er tvískiptur og annarsvegar í Bandaríkjadollurum og hins vegar í íslenskum krónum, er allt að 200 milljónir Bandaríkjadollara að nafnvirði. Þegar hafa verið gefin út skuldabréf í flokknum að nafnvirði 107 milljónir Bandaríkjadollara sbr. tilkynningu um sölu á bréfum að andvirði 70 milljónir Bandaríkjadollara í desember 2022 og tilkynningu um sölu á bréfum að andvirði 40 milljónir Bandaríkjadollara fyrr í dag (nafnvirði 37 milljónir Bandaríkjadollara).

Skuldabréfin í íslenskum krónum eru skráð til viðskipta á Nasdaq First North Growth markaðnum undir auðkenninu ALVCVB251220 og bera 15% vexti á ársgrundvelli, með tveimur vaxtadögum á ári. Skuldabréfin í Bandaríkjadollurum eru óskráð og bera 12,5% vexti á ársgrundvelli, með tveimur vaxtadögum á ári. Vextir bætast við höfuðstólinn á hverjum gjalddaga og ávaxtast (s.n. PIK vextir).  Handhafar bréfanna hafa rétt til að breyta höfuðstól og áföllnum vöxtum, að hluta eða í heild, í almenn hlutabréf Alvotech á föstu gengi sem er 10 Bandaríkjadollarar á hlut, annars vegar 31. desember nk. og hins vegar 30. júní 2024.

Útboðið hefst kl. 9:00 mánudaginn 24. júlí og þurfa öll tilboð að berast fyrir kl. 14:00 sunnudaginn 30. júlí nk. Acro verðbréf hf. og Landsbankinn hf., fyrirtækjaráðgjöf, hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna. Aðeins hæfir fjárfestar á Íslandi í samræmi við ákvæði laga og reglugerða þar að lútandi, mega taka þátt í útboðinu.

Skuldabréfin verða seld á föstu verði sem miðar við uppreiknað andvirði skuldabréfanna („par verð“) á uppgjörsdegi sem áætlað er að verði 11. ágúst nk. Seld verða skuldabréf fyrir að minnsta kosti 100 milljónir Bandaríkjadollara að andvirði, um 91 milljón Bandaríkjadollara að nafnverði.

ATP Holdings ehf., félag tengt Aztiq Pharma Partners S.a. r.l. sem er stærsti hluthafi Alvotech, hefur gert samning við félagið sem skuldbindur ATP Holdings ehf. til að kaupa öll skuldabréf í útboðinu sem ekki verða seld öðrum samkvæmt gildandi tilboðum, allt að andvirði 100 milljóna Bandaríkjadollara.

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson
alvotech.ir@alvotech.com