Alvotech semur við LOTTE Biologics í Syracuse í Bandaríkjunum um framleiðslu á líftæknilyfjahliðstæðum og eykur þannig framleiðslugetu sína

Fyrirtækjafréttir
06 október 2026
  • LOTTE Biologics mun framleiða nokkur af lyfjum Alvotech í verksmiðju sinni í New York-ríki
  • Samstarfið við LOTTE Biologics eykur framleiðsluafköst Alvotech enn frekar og mun gera fyrirtækinu kleift að mæta aukinni eftirspurn á alþjóðlegum mörkuðum 

REYKJAVÍK, Ísland, og SEÚL, Suður-Kórea (6. október 2026) - Alvotech (NASDAQ: ALVO; ALVO-SDB) og LOTTE Biologics tilkynntu í dag langtímasamstarf um framleiðslu líftæknilyfjahliðstæðna. Samstarfið er liður í uppbyggingu alþjóðlegrar framleiðslu Alvotech. Alvotech er alþjóðlegt líftæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu slíkra lyfja fyrir sjúklinga um allan heim. LOTTE Biologics sérhæfir sig í framleiðslu á líftæknilyfjum.

LOTTE Biologics mun framleiða virku lyfjaefnin í umsamdar líftæknilyfjahliðstæður Alvotech fyrir alþjóðlega markaði. Framleiðslan fer fram í verksmiðju fyrirtækisins í Syracuse í New York-ríki. Framleiðslugeta LOTTE Biologics er umtalsverð og rúma ræktunartankar verksmiðjunnar samtals 40.000 lítra. Verksmiðjan var áður í eigu BMS. Framleiðsluaðstaðan hefur uppfyllt ítrustu kröfur Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA) og hefur nýlega verið tekin út af FDA án athugasemda.

Með samningnum eykur Alvotech framleiðslugetu sína enn frekar á heimsvísu og getur brugðist hraðar við aukinni eftirspurn á alþjóðlegum mörkuðum, auk þess að anna eftirspurn eftir lyfjum sem félagið mun setja á markað á komandi árum. Með samstarfi við LOTTE Biologics og aðra framleiðendur, ásamt eigin framleiðslu, gerir Alvotech ráð fyrir að hafa næg afköst að minnsta kosti næstu tíu árin.

„Alvotech hefur þróað innanhúss eitt fjölbreyttasta úrval líftæknilyfjahliðstæðna,“ sagði Lisa Graver, forstjóri Alvotech. „Samstarfið við LOTTE Biologics mun auka afkastagetu Alvotech enn frekar og gera félaginu kleift að mæta aukinni eftirspurn eftir þeim lyfjum sem eru á markaði, ásamt því að koma nýjum lyfjum á markað. Með þessum samningi munum við búa yfir nægri framleiðslugetu næsta áratuginn á vegferð okkar til að auka aðgengi sjúklinga að hliðstæðulyfjum um allan heim.“

„Alvotech sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á líftæknilyfjahliðstæðum fyrir alþjóðlega markaði, en með samstarfinu eykur LOTTE Biologics afkastagetu Alvotech,“ sagði James Park, forstjóri LOTTE Biologics. „Við hlökkum til að starfa með Alvotech og auka framboð á hliðstæðulyfjum. Framleiðsluaðstaða LOTTE Biologics í Syracuse býður Alvotech upp á mikinn sveigjanleika, enda er framleiðslugeta verksmiðjunnar næg.“

Unnið verður að yfirfærslu framleiðsluferla Alvotech til Bandaríkjanna og að því loknu verður sótt um samþykki FDA fyrir því að bæta verksmiðjunni í Syracuse inn í umsókn Alvotech.

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech framleiðir og markaðssetur fimm líftæknilyfjahliðstæður, hliðstæðu við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Eylea (aflibercept), Simponi (golimumab) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur félagið að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem m.a. geta nýst sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, blóðsjúkdóma eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech. Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube.

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com