Alvotech tilkynnir um útgáfu eigin hlutabréfa

Fyrirtækjafréttir
28 mars 2023

Alvotech (NASDAQ: ALVO) tilkynnti í dag að stjórn fyrirtækisins hefði ákveðið að gefa út fjórtán milljón fimm þúsund sjöhundruð og níutíu (14.005.790) nýja almenna hluti í félaginu. Dótturfélag Alvotech, Alvotech Manco ehf. kaupir öll bréfin af móðurfélaginu á genginu 13,51 Bandaríkjadalir á hlut. Hlutir dótturfélagsins eru taldir til eigin hlutabréfa Alvotech og fylgir þeim því hvorki atkvæðisréttur né réttur til arðgreiðslu.

Að loknum þessum viðskiptum á dótturfélagið alls 26.212.633 hluti í móðurfélaginu, eða um 9% útgefinna hlutabréfa. Við útgáfu þessara hlutabréfa eykst fjöldi útgefinna hluta úr 275.721.672 hlutum í 289.727.462 hluti.

Alvotech tilkynnti 10. febrúar sl. um að lokið væri uppgjöri viðskipta vegna lokaðs hlutafjárútboðs en þá voru 11.834.061 hlutabréf í Alvotech sem áður voru í eigu félagsins gegnum dótturfyrirtækið Alvotech Manco hf. afhent kaupendum. Aukning eigin hlutabréfa gerir Alvotech kleift að mæta þessari lækkun og eiga áfram nægan fjölda hluta til að standa við fjárhagslegar skuldbindingar s.s. vegna áskriftarréttinda, breytilegra skuldabréfa, hvatakerfis fyrir starfsmenn o.fl. 

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu,  Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.  Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson
alvotech.ir[at]alvotech.com