Alvotech hefur sent beiðni til Verðbréfaeftirlits Bandaríkjanna (SEC) í framhaldi af umsókn félagsins 21. ágúst sl. um viðbót við skráningarlýsingu vegna viðskipta með hlutabréf félagsins á markaði í Bandaríkjunum. SEC hefur þegar staðfest að yfirferð skráningarlýsingarinnar sé lokið án athugasemda. Því biður Alvotech eftirlitið um staðfestingu á gildistöku skráningarlýsingarinnar við lokun markaða í Bandaríkjunum, fimmtudaginn 29. ágúst nk.
Að öðru leiti er vísað í tilkynningu til markaðarins 22. ágúst sl.
Alvotech fjárfestatengsl
Benedikt Stefansson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com
