Alvotech, hlutafélag (société anonyme) stofnað í samræmi við lög í lögsögu Lúxemborgar, með skráð heimilisfang að 9, rue de Bitbourg, L-1273 Lúxemborg og skráð á Íslandi undir kennitölunni 671221-9740 („félagið“ eða „Alvotech“), hefur birt skráningarskjal vegna fyrirhugaðrar skráningar á skuldabréfamarkað First North á Íslandi („First North“) á víkjandi skuldabréfum félagsins í flokki A sem er í íslenskum krónum með breytirétti í almenn hlutabréf í Alvotech, og bera auðkenni ALVCVB251220 og ISIN nr. IS0000034858 („skuldabréfin“)
Fyrirhugað er að fyrsti viðskiptadagur með skuldabréfin á First North verði 8. febrúar 2023. Nasdaq Iceland hf. mun birta tilkynningu þess efnis einum degi fyrir fyrirhugaðan fyrsta viðskiptadag á First North.
Skráningarskjalið er í viðhengi og er einnig að finna á vef félagsins:
https://investors.alvotech.com/static-files/5df9b6a6-5b61-45b7-b690-cac3ab06f395
Nánari upplýsingar veitir:
Fjárfestatengsla- og samskiptasvið Alvotech
Benedikt Stefansson
alvotech.ir[at]alvotech.com
Viðhengi
