Stjórn Alvotech ákvað þann 6. júní 2023 að veita ákveðnum stjórnarmönnum kauprétti fyrir alls 109.524 hlutum í Alvotech. Kaupréttirnir voru veittir fjórum óháðum stjórnarmönnum.
Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni stjórnarmanna og Alvotech til lengri tíma. Skilmálar samninganna eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Alvotech þann 6. júní 2023 og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á sama aðalfundi.
Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:
- Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á viðmiðunarverðinu 8.40 Bandaríkjadalir á hlut.*
- Ávinnslutími er þrjú ár frá úthlutun kaupréttanna, þ.e. þriðjungur kaupréttanna virkjast á hverju ári sem liðið er frá úthlutun. Viðmiðunarverð ræðst af gengi hlutabréfa Alvotech á aðalfundardegi, þegar úthlutunin átti sér stað.
- Rétthafi þarf að sitja í stjórn Alvotech til að geta nýtt kaupréttinn.
Hér erum að ræða fyrstu úthlutun Alvotech á kaupréttum. Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Alvotech hefur veitt er því jafn þeim fjölda kauprétta sem veittir voru stjórnarmönnum þann 6. júní 2023.
*Kaupréttargengið er ákvarðað út frá skráðu gengi hlutabréfa Alvotech (Nasdaq:ALVO) sem birt var á vefnum nasdaq.com við opnun markaðarins þann 6. júní 2023.
Alvotech, fjárfestatengsl
Benedikt Stefánsson
alvotech.ir[at]alvotech.com
