
Stjórnarmaður
Ann Merchant
Ann Merchant hefur setið í stjórn Alvotech frá því í júní 2022. Frá árinu 2018 hefur hún setið í framkvæmdastjórn MorphoSys og frá janúar 2019 til mars 2025 gegndi hún stöðu yfirmanns alþjóðlegrar aðfangakeðju og ytri starfsemi fyrir sama félag. Áður en hún hóf störf hjá MorphoSys, frá september 2011 til ágúst 2018, var Ann forstjóri Schreiner Medipharm. Á árunum 1994 til 2011 gegndi hún ýmsum störfum hjá Amgen, þar á meðal sem framkvæmdastjóri, yfirmaður alþjóðlegrar aðfangakeðju og stöðvarstjóri í Hollandi á árunum 2007 til 2011. Ann er með MBA-gráðu frá Henley-viðskiptaháskólanum og BS-gráðu í tungumálum frá Georgetown-háskóla.