
Anthony M. Maffia III
Anthony M. Maffia III gekk til liðs við Alvotech árið 2024. Hann býr að meira en tveggja áratuga reynslu af lyfjaskráningum og er séfræðingur í að greiða úr því flókna regluverki sem fylgir skráningu og eftirliti með líftæknihliðstæðulyfjum.
Anthony ber ábyrgð á því að koma líftæknihliðstæðulyfjum Alvotech í gegnum hvert þrep samþykkisferlisins. Þar sem Alvotech hefur stofnað til samstarfs við lyfjafyrirtæki sem starfa á rúmlega 90 mörkuðum um allan heim þarf að huga að öllum smáatriðum þeirra reglugerða sem gilda um líftæknihliðstæðulyf í hverju lögsagnarumdæmi. Starfsfólk í lyfjaskráningu skipuleggur þetta starf í samstarfi við rannsóknar- og þróunar- og viðskiptateymin okkar auk samstarfsaðilanna.
Áður en Anthony réðst til Alvotech var hann framkvæmdastjóri lyfjaskráningar í Norður-Ameríku fyrir Sandoz og áður framkvæmdastjóri lyfjaskráningar í Norður-Ameríku fyrir Glenmark. Hann hóf feril sinn í lyfjaskráningum hjá Ranbaxy og starfaði svo hjá Actavis sem umsjónarmaður lyfjaskráninga í Bandaríkjunum. Áður en Anthony hóf að einbeita sér að lyfjaskráningum vann hann við líffræðirannsóknir hjá DuPont Merck Pharmaceuticals þar sem ást hans á vísindum kom að góðum notum við leit að nýjum lyfjamörkum.