
Dr. Balaji Prasad, MD
Dr. Prasad er læknir að mennt og hefur starfað við málefni tengd lyfjaiðnaði í rúman aldarfjórðung, sem ráðgjafi og sérfræðingur í fjármálum og hlutabréfaviðskiptum með áherslu á lyfjaiðnað og heilbrigðisþjónustu. Hann var hlutabréfagreinandi hjá Barclays bankanum þar sem sérsvið hans var lyfjafyrirtæki skráð í Bandaríkjunum. Alvotech var á meðal þeirra fyrirtækja í sem hann greindi. Áður stýrði hann eignasafni hjá svissnesku fjármálafyrirtæki með áherslu á fjárfestingu í alþjóðlegum félögum sem framleiða sérhæfð frumlyf og samheitalyf. Þá starfaði hann hjá Barclays og Goldman Sachs bönkunum í Mumbai á Indlandi og stýrði þjónustu bankanna við heilbrigðisfyrirtæki. Dr. Prasad lauk prófi í læknisfræði frá Læknaháskólanum í Bangalore og er með MBA-gráðu frá IIM Ahmedabad.