
Hjörleifur Pálsson
Hjörleifur Pálsson hefur setið í stjórn Alvotech frá því í júní 2024. Frá árinu 2013 hefur hann setið í stjórnum félaga í ýmsum atvinnugreinum, þar á meðal lyfjaiðnaði, smásölu, lækningatækjum, fjölmiðlun og fjarskiptum, menntun og sviði fjárfestinga.. Á árunum 2001 - 2013 var Hjörleifur fjármálastjóri Össurar (nú Embla), leiðandi fyrirtækis í lækningatækjum sem skráð er á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn. Þar öðlaðist hann yfirgripsmikla reynslu af stjórnun á sviði reikningshalds, áætlanagerðar, fjárfestatengsla, fjármögnunar, samruna og yfirtöku fyrirtækja, mannauðsmála og upplýsingaþjónustu. Áður var Hjörleifur meðeigandi og stjórnarmaður hjá Deloitte á Íslandi þar sem hann starfaði sem löggiltur endurskoðandi frá 1989 til 2001. Hjörleifur lauk Cand. Oecon-prófi í fjármálum og reikningshaldi frá Háskóla Íslands árið 1988 og hlaut löggildingu sem endurskoðandi árið 1989.