
Framkvæmdastjóri rekstrar
Joseph E. McClellan
Joseph E. McClellan var framkvæmdastjóri rannsókna- og þróunarsviðs Alvotech frá október 2019 og tók í nóvember 2025 við stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs. Áður en hann gekk til liðs við Alvotech starfaði Joseph í 17 ár fyrir lyfjafyrirtækið Pfizer Inc., þar á meðal sem alþjóðlegur framkvæmdastjóri þróunar á líftæknilyfjahliðstæðum og forstöðumaður þróunar á hliðstæðu við infliximab. Hann lauk doktorsprófi í efnafræði með áherslu á efnagreiningu og massagreiningu frá Florida-háskóla og starfaði sem nýdoktor í massagreiningu og lífefnafræði við læknadeild Boston-háskóla.