
Lisa Graver
Lisa Graver sat í stjórn Alvotech frá júní 2022 þar til í byrjun apríl 2026, þegar hún tók við starfi forstjóra Alvotech. Hún hefur gegnt fjölmörgum ábyrgðarstöðum í lyfjaiðnaði undanfarna rúma tvo áratugi. Áður en Lisa réðst til starfa sem forstjóri Alvotech var hún forstjóri bandaríska lyfjafyrirtækisins Alvogen Group Inc. í rúm 11 ár. Áður gegndi hún ýmsum í leiðtogastöðum hjá Actavis og Alpharma í Bandaríkjunum. Lisa býr að víðtækri reynslu á sviði markaðs- og sölumála, regluverks í lyfjaiðnaði, rannsókna- og þróunar, hugverkaréttar og stefnumótunar. Að loknu námi vann hún um skeið sem lögfræðingur á sviði hugverkaréttar fyrir lögfræðistofuna Kirkland & Ellis. Lisa er með B.S. gráðu í líffræði frá Lakehead-háskólanum í Kanada og próf í lögfræði frá lagadeild Case Western Reserve í Bandaríkjunum.