
Framkvæmdastjóri upplýsingatækni
Neha Patel
Sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni, styður Neha við áframhaldandi vöxt Alvotech og vinnur náið með helstu sviðum félagsins að því að innleiða nýja tækni og ferla í upplýsingatækni til hagsbóta fyrir rekstur félagsins.
Neha gekk til liðs við Alvotech árið 2023. Hún var framkvæmdastjóri upplýsingatækni fyrir Alvogen frá árinu 2015 og býr að meira en tveggja áratuga reynslu á sviði upplýsingatækni í lyfjageiranum, fjarskiptafyrirtækjum og bankakerfinu. Áður en hún hóf störf hjá Alvogen vann Neha að því að innleiða nýja ferla á sviði upplýsingatækni hjá Daiichi Sankyo Pharma. Hún útskrifaðist með BS gráðu í tölvunarfræði frá New Jersey Institute of Technology.