
Richard Davies
Richard Davis er varaformaður stjórnar Alvotech, hefur setið í stjórn félagsins frá því í janúar 2019 og var stjórnarformaður félagsins fram að skráningu þess á markað í júní 2022. Frá nóvember 2018 til desember 2020 starfaði hann sem forstjóri Auregen Bio Therapeutics SA. Í kjölfarið stofnaði hann Gybeset BioConsult GmbH þar sem hann er stofnandi og framkvæmdastjóri. Áður en hann hóf störf hjá Auregen Bio Therapeutics var Davies forstjóri Bonesupport AB á árunum 2016 til 2018. Á árunum 2012 til 2015 var hann framkvæmdastjóri og yfirmaður viðskiptasviðs hjá Hospira Inc. Þá gegndi hann ýmsum leiðtogastöðum hjá Amgen Inc. á árunum 2003 til 2012 og starfaði þar áður hjá Eli Lilly í um 12 ár. Davies er með MBA-gráðu frá Warwick-háskóla og BSc-gráðu í hagnýtri efnafræði frá Portsmouth-háskóla.