
Róbert Wessman
Róbert hefur undanfarin rúman aldarfjórðung getið sér gott nafn sem frumkvöðull og leiðtogi á sviði samheitalyfja og líftæknihliðstæðulyfja. Hann hefur stofnað og rekið fjölmörg lyfjafyrirtæki sem eiga eittmarkmið sameiginlegt: að bæta líf fólks með því að auka aðgengi að hágæða lyfjum á viðráðanlegu verði. Róbert hefur þannig þegar stofnað fjölda einhyrninga, fyrirtæki sem metin eru á meira en milljarð bandaríkjadala. Meðal þessara fyrirtækja eru Actavis, Alvogen, Medis, Adalvo og Lotus auk Alvotech. Viðskiptadeild Harvard háskóla hefur þegar birt þrjár greiningar á þessum farsæla ferli Róberts sem kenndar eru í framhaldsnámi í viðskiptafræði.
Róbert er fæddur og uppalinn í Mosfellsbæ og lauk cand. oecon. prófi frá Háskóla Íslands. Árið 1999, þegar hann var 29 ára, lét hann af starfi fyrir Samskip í Hamborg og var ráðinn forstjóri lyfjafyrirtækisins Delta, sem þá rambaði á barmi gjaldþrots. Delta rann saman við Pharmaco og úr varð Actavis. Þegar Róbert hætti sem forstjóri Actavis árið 2008 var félagið orðið eitt stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims, með starfsemi í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu. Hann hefur allar götur síðan verið leiðandi í nýsköpun og vexti framsækinna fyrirtækja á sviði lyfjaþróunar og -framleiðslu.
Róbert orðar markmið sín á einfaldan hátt: „Við lifum á tímum ótrúlegra framfara í læknisfræði en það er ekki hægt að tala um kraftaverkalyf nema að þau sé aðgengileg öllum sjúklingum sem þurfa á þeim að halda. Ég vinn að því að gera það að veruleika.“