Tanya Zharov
Yfirlögfræðingur og aðstoðarforstjóri

Tanya Zharov

Tanya Zharov hefur starfað sem stjórnandi og lögfræðingur fyrirtækja í alþjóðlegri líftækni, heilbrigðisþjónustu og fjármálaþjónustu í meira en aldarfjórðung. Þannig hefur hún aflað sér dýrmætrar reynslu á sviði viðskipta og nýsköpunar í lífvísindum sem kemur að góðum notum hjá Alvotech. Tanya er lögfræðingur að mennt og sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs r fyrirtækisins ber hún ábyrgð á öllum lögfræðilegum málefnum þess, reglufylgni og öryggismálum, auk þess sem hún er ritari stjórnar.

Tanya hóf störf hjá Alvotech árið 2020 en hafði frá árinu 2016 verið aðstoðarforstjóri og regluvörður Íslenskrar erfðagreiningar (deCODE genetics) sem Amgen keypti árið 2012. Hún var einnig yfirlögfræðingur deCODE á árunum 1999 til 2007 og stýrði hópnum sem undirbjó hlutafjárútboð deCODE í Bandaríkjunum árið 2000. Það var í fyrsta sinn sem hlutabréf íslensks fyrirtækis voru skráð á bandarískan hlutabréfamarkað.

Frá 2008 til 2015 var Tanya einn stofnenda og aðstoðarforstjóri verðbréfafyrirtækisins Auður Capital. Þar bar hún ábyrgð á lögfræðilegum málefnum, eignastýringu, þjónustu við fyrirtæki, viðskiptum með óskráð hlutabréf og ýmsum samskiptum við fjármálamarkaðinn. Tanya er sérfræðingur í bandarískum og alþjóðlegum lögum, eftirliti og starfsháttum á verðbréfamörkuðum. Snemma á starfsferlinum starfaði hún sem skattalögfræðingur hjá PricewaterhouseCoopers. Tanya er cand. jur. frá Háskóla Íslands og evrópskur einkaleyfasérfræðingur.