
Stjórnarmaður
Tomas Ekman
Tomas Ekman tók fyrst sæti í stjórn Alvotech í janúar 2019. Hann er ráðgjafi hjá CVC Capital Partners og hóf störf þar sem meðeigandi árið 2014. Tomas er hluti af teymi CVC á Norðurlöndum, með aðsetur í Stokkhólmi. Áður en hann hóf störf hjá CVC var hann meðeigandi og framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins 3i og bar ábyrgð á allri starfsemi þess á Norðurlöndum. Tomas Ekman er með meistaragráður frá Strathclyde-háskóla og Chalmers tækniháskólanum auk MBA-gráðu frá IMD.