

Félagslegir þættir
Áhersla okkar á samfélagslega ábyrgð snýst ekki aðeins um að stuðla að auknum lífsgæðum með bættu aðgengi að líftæknilyfjum á viðráðanlegu verði. Við viljum einnig stuðla að velferð samfélagsins, sjúklinga, samstarfsaðila og starfsfólks. Fyrir starfsmenn okkar höfum við byggt upp fjölbreyttan fjölmenningarlegan vinnustað þar sem farið er eftir meginreglum um jafnrétti og sanngirni.
Fjölbreytni og inngilding
Fjölbreytni og inngilding eru grunnurinn að menningu Alvotech. Í teyminu okkar eru einstaklingar af fjömörgum þjóðernum sem allir vinna að sama markmiði á grundvelli sameiginlegra gilda og áhuga. Höfuðstöðvar okkar eru á Íslandi og við tökum mið af íslenskum áherslum á félagslegt jafnrétti í viðleitni okkar til að skapa vinnustað sem einkennist af jafnrétti, virðingu, sanngirni og réttlæti á öllum stöðum þar sem við störfum.
Á Íslandi teljast kynjajafnrétti og sanngirni til grunnstoða samfélagsins. Í starfi okkar við að byggja upp fjölmenningarlegan og fjölbreyttan vinnustað sem teygir anga sína til margra heimshorna leggjum við okkur fram við að varðveita þessi grunngildi þannig að þau séu í heiðri höfð í fyrirtækinu öllu, hvar í heiminum sem starfsmenn eru staddir. Jafnrétti, fjölbreytni og inngilding eru grunnurinn að því jákvæða umhverfi sem við viljum skapa, til að styrkja og efla rekstur fyrirtækisins.
Starfsfólkið er einn mikilvægasti hópur hagaðila félagsins. Heilbrigt, ánægt og áhugasamt starfsfólk er forsenda fyrir farsælli starfsemi fyrirtækisins. Frá og með árinu 2020 hefur fyrirtækið lagt fyrir starfsmannakannanir með reglulegu millibili. Þetta gerir Alvotech kleift að skilja betur helstu áhættuþætti og tækifæri og bæta samskipti við starfsfólk.
Heilbrigði og öryggi
Heilbrigði og öryggi eru mikilvægir þættir í samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins. Hjá okkur starfa hundruð um allan heim sem öll hafa rétt á heilbrigðu og öruggu vinnuumhverfi.
Við leggjum áherslu á heilbrigði og öryggi með því að fylgjast með áhættu og atvikum og miðla upplýsingunum til starfsfólks. Allt starfsfólk hefur aðgang að mánaðarlegum skýrslum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggisráðstafanir. Þetta gerir Alvotech kleift að einbeita sér að slysavörnum og stuðla að hugarfari þar sem sífellt er leitað leiða til úrbóta á vinnustaðnum. Innri nefndin um aðbúnað, hollustuhætti og öryggisráðstafanir á vinnustaðnum ræðir niðurstöður á reglulegum fundum sem og hugsanlegar ráðstafanir til að draga úr áhættu og stuðla að bættri heilsu og öryggi alls starfsfólks.
Við höldum áfram að fylgjast með líðan starfsfólks í reglubundnum starfsmannakönnunum og höfum meðal annars notað niðurstöðurnar til að innleiða aðgerðir til að bæta jafnvægi á milli vinnu og einkalífs og veita aðgengi að sálfræðiaðstoð. Þetta endurspeglar hvernig Alvotech setur heilsu og öryggi starfsmanna í forgang um leið og tryggt er að hægt sé að sinna nauðsynlegum rekstri.
Áætlun um heilbrigði og öryggi
Jafnlaunavottun
Við leggjum áherslu á jafnrétti og sanngirni á öllum sviðum Alvotech. Ísland, þar sem aðalverksmiðja og höfuðstöðvar Alvotech eru staðsettar, er í 1. sæti í heiminum þegar kemur að kynjajafnrétti.1
Alvotech er stolt af því að leggja sitt af mörkum til þess að landið getið haldið forystu í þessum efnum. Við leggjum einnig áherslu á að launajafnrétti sé alls staðar innan fyrirtækisins og því alls staðar í heiminum. Fyrirtækið hefur fengið jafnlaunavottun samkvæmt íslenska jafnlaunastaðlinum (ÍST 85:2012).2
Til að fá vottun samkvæmt staðlinum þurfa konur og karlar sem starfa hjá sama fyrirtæki að fá sömu laun og starfskjör fyrir sömu eða sambærileg störf. Einnig þurfa skýrt afmarkaðar jafnlauna-, kjara og jafnréttisstefnur að vera til staðar. Vottunin er staðfest í óháðri úttekt. Við höfum að eigin frumkvæði ákveðið að sömu reglur skuli gilda um allt starfsfólk í fyrirtækinu öllu án tillits til þess hvort það starfi á Íslandi eða annars staðar.
Til að viðhalda jafnlaunavottun sinni skuldbindur Alvotech sig til að:
Innleiða vottað jafnlaunakerfi sem byggist á staðlinum ÍST 85:2012 og þarf að endurnýja á þriggja ára fresti.
Setja og viðhalda stefnu til að tryggja jöfn tækifæri fyrir allt starfsfólk og að kjör séu ákveðin með gagnsæjum og hlutlægum hætti.
Koma í veg fyrir beina eða óbeina mismunun eða áreitni á vinnustað á grundvelli kyns, aldurs, trúar, þjóðernis, kynþáttar, fötlunar, kynhneigðar eða stjórnmálaskoðana.
Birta árlega jafnréttisskýrslu sem er gerð aðgengileg almenningi og starfsfólki okkar.
Samkvæmt Global Gender Gap Index frá Alþjóðaefnahagsráðinu fyrir árið 2021