

Umhverfi
Við höfum einsett okkur að skilja og draga úr áhrifum okkar á náttúruna. Í höfuðstöðvum okkar og verksmiðju í Reykjavík getum við nýtt endurnýjanlegar náttúruauðlindir Íslands, þar á meðal hreina vatnið og endurnýjanlegu vatns- og jarðvarmaorkuna sem sér íslenskum fyrirtækjum og heimilum fyrir raforku og hitun. Þetta gerir okkur kleift að halda jafnvægi á milli mismunandi markmiða, í vexti starfseminnar, hagnaði og sjálfbærni. Við erum alþjóðlegt fyrirtæki og áhrif okkar á umhverfið eru nátengd langtímaárangri okkar og verðmætasköpun. Við höfum einsett okkur að lágmarka áhrif okkar á náttúruauðlindir og loftslagsbreytingar. Við vitum að þessi skuldbinding hefst með því að skilja hvernig við eigum hlut að máli með orkunotkun eða losun. Á þeim grunni getum við mótað aðgerðir til að draga úr orku- og losun frá starfseminni.
Losun og orkunotkun
Alvotech er alþjóðlegt fyrirtæki með starfsfólk um allan heim. Rannsóknar- og þróunarstarf okkar og meginhluti framleiðslu fer fram á Íslandi þar sem hlutfall endurnýjanlegrar orku í raforku og húshitun er einna mest í heimi og losun frá hita og rafmagni er einna minnst. Við höfum reynt að leggja mat á losun í umfangi 1 (sem er bein losun), umfangi 2 (sem er óbein losun, einkum vegna orkunotkunar) og umfangi 3 (sem er óbein losun, einkum vegna virðiskeðjunnar). Nú þegar Alvotech breytist úr því að vera rannsókna- og þróunarfyrirtæki yfir í fyrirtæki sem markaðssetur vörur á heimsvísu væntum við þess að losun í umfangi 1 og 2 verði áfram í minna lagi. Hins vegar gerum við ráð fyrir að losun okkar í umfangi 3 aukist verulega, þar sem hún er afleiða af losun frá framleiðslu hráefna og búnaðar sem notuð eru við framleiðsluna. Við erum við staðráðin í að greina betur og loks draga úr þessari losun, sem tengist öllum hlutum virðiskeðjunnar leið og við höldum áfram að stuðla að sjálfbærni okkar eigin starfsemi. Við erum jafnframt staðráðin í að halda áfram að vega upp á móti þessari losun eftir því sem skilningur okkar á áhrifum samkvæmt umfangi 3 vex.
Öll raforka á Íslandi er framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsorku og jarðvarma. Jarðvarmi er notaður fyrir alla hitaveitu í Reykjavík þar sem Alvotech starfar. Þessir endurnýjanlegu orkugjafar eru notaðir til að knýja framleiðslu Alvotech sem dregur verulega úr þörf okkar á losun í umfangi 2 (óbein losun). Megnið af losun okkar í umfangi 2 er óbein losun frá aðkeyptu rafmagni og varmaorku. Við getum mælt notkun þessara orkugjafa og tilheyrandi losunarstuðla beint í starfsstöðvum okkar á Íslandi. Fyrir starfsstöðvar okkar í öðrum löndum (svo sem Þýskalandi, Bandaríkjunum, Indlandi, Svíþjóð og Sviss) sem eru í samnýttum byggingum reiðum við okkur á mat byggt á stærð starfsstöðva og notumst við staðlað nýtingarhlutfalli á fermetra og sértæka losunarstuðla fyrir rafmagn og hita í hverju landi.
Vatnsnotkun
Aðgengi að fersku vatni er forsenda lýðheilsu og hagfelldar efnahagsþróunar. Skortur á fersku vatni hefur í för með sér þjóðhagslega og fjárhagslega áhættu fyrir öll fyrirtæki auk þess að ógna sjálfbærri þróun heilbrigðra samfélaga. Þar að auki er vatn mikilvægur þáttur í framleiðslu öruggra og árangursríkra líftæknilyfja. Alvotech hefur valið Ísland sem miðstöð rannsókna sinna og þróunar. Á Íslandi býðst nóg af köldu vatni og jarðhitavatni (heitu vatni) frá náttúrunnar hendi. Samkvæmt Alþjóðabankanum er Ísland í 2. sæti í heiminum yfir mestu endurnýjanlegu ferskvatnsauðlindirnar miðað við höfðatölu, næst á eftir Grænlandi. Á Íslandi eru 495.050 rúmmetrar af vatni á hvern íbúa samanborið við til dæmis Bandaríkin sem eru í 57. sæti með 8.670 rúmmetra á mann.
Þrátt fyrir þessar miklu vatnsauðlindir leggur Alvotech áfram áherslu á vatnssparnað. Við notum einnota tækni til að framleiða líftæknilyfjahliðstæðurnar okkar sem dregur verulega úr bæði vatns- og efnanotkun samanborið við fjölnotakerfi. Þar að auki auðveldar einnota tæknin skipti á milli framleiðslulotna eða vörutegunda og sparar það gríðarlega vatns- og orkunotkun sem annars yrði þörf á í öllu framleiðsluferlinu, einkum til hreinsunar á búnaði.
Úrgangur
Alvotech einbeitti sér fyrst og fremst að rannsóknum og þróun fram til ársins 2022 en þá var framleiðsla stóraukin þegar við settum fyrstu líftæknilyfjahliðstæðuna á markað. Framleiðsla fer enn vaxandi með auknu vöruúrvali. Alvotech stefnir að því að vera leiðandi framleiðandi líftæknilyfjahliðstæðna á stórum jafnt sem smáum alþjóðlegum mörkuðum. Við höfum getu til að markaðssetja hliðstæðurnar á yfir 90 mörkuðum víða um heim. Þessu fylgir óhjákvæmilega aukin notkun á hráefnum og aukning á úrgangi.
Sýnt hefur verið fram á að framleiðsla einstofna mótefna með einnota tækni dregur úr heildarumhverfisáhrifum samanborið við hefðbundnari margnota vinnslutækni. Á móti kemur að með einnota tækni myndast úrgangur vegna notkunar á einnota plasti sem er jafn mikill frá ferlum þar sem notast er við margnota búnað. Við gerum okkur grein fyrir því að atvinnugreinin í heild verður að vinna að því í að færa sig úr línulegri notkun á plasti yfir í hringrásarhagkerfi fyrir plast. Til að ná þessu markmiði þarf Alvotech ekki aðeins að bæta innri ferla heldur einnig að vinna með og gera meiri kröfur til seljenda okkar í framtíðinni. Lykilatriði í þróun sjálfbærniáætlunar okkar er að skilja og draga úr áhrifum einnota plasts á náttúrulegt umhverfi.