

Líftæknihliðstæður á markað
Hjá Alvotech sérhæfum við okkur í framleiðslu líftæknilyfjahliðstæðna til þess að auka aðgengi að líftæknilyfjum á viðráðanlegu verði og stuðla þannig að auknum lífsgæðum. Við trúum því að með samþættingu á öllum stigum, allt frá rannsóknum og þróun til endanlegs frágangs og pökkunar, höldum við réttri áherslu, getum auðveldar aukið umfangið og náð þeim hraða sem við þurfum til að takast ætlunarverk okkar. Við vitum líka að hver markaður er einstakur og því höfum við efnt til samstarfs við söluaðila um allan heim til að geta aukið framboðið. Þannig getum við einbeitt okkur að því sem við gerum best en jafnframt notið sérþekkingar og slagkrafts samstarfsaðilanna.
Samþætt nálgun
Rannsóknir og þróun
Við höfum markað okkur stefnu um þróun einstofna mótefna á margvíslegum meðferðarsviðum, þar á meðal ónæmisfræði, krabbameinslækningum og augnlæknisfræði. Við höldum áfram að meta tækifæri eða óuppfylltar þarfir til að auka framboð og aðgengi að þessum mikilvægu líftæknilyfjum fyrir sjúklinga sem þarfnast meðferðar.
Á starfsstöðvum okkar á Íslandi og meginlandi Evrópu fer fram öflug þróunarstarfsemi og klínísk þjónusta til að styðja við þróunarstarf okkar.
Framleiðsla
Við notum einnota tækni í framleiðsluaðstöðu okkar í Reykjavík og erum stolt af því að geta dregið úr umhverfisáhrifum starfsemi okkar með því að nota nær eingöngu endurnýjanlega orku sem framleidd er á Íslandi. Auk ávinnings af einnota tækni til að koma í veg fyrir hættu á víxlmengun í gerjunarferlinu eru einnig vísbendingar um að umhverfisáhrif þessarar tækni séu mun minni tækni sem byggð er á margnota búnaði úr ryðfríu stáli.
Um þessar mundir erum við að tvöfalda framleiðslugetu okkar á líftæknilyfjahliðstæðum til að búa okkur undir að geta annað eftirspurn í framtíðinni um leið og við tryggjum að starfsstöðvar okkar uppfylli kröfur lyfjastofnana svo sem FDA og EMA um góða framleiðsluhætti (cGMP).