Samfélagsleg ábyrgð

Stjórnarhættir

Alvotech leggur mikla áherslu á góða og gagnsæja stjórnarhætti. Reglur okkar um stjórnarhætti, ásamt innra eftirliti okkar og stefnum, er ætlað að styðja við sjálfbæran rekstur og verðmætasköpun til langs tíma fyrir alla hagaðila, þar á meðal hluthafa, sjúklinga og starfsfólk.

Stjórn fyrirtækisins

Stjórnin gerir sér skýra grein fyrir mikilvægi góðra stjórnarhátta og áhrifum þeirra á sjálfbæra viðskiptahætti. Stjórnin hefur sett á laggirnar sjálfbærninefnd sem starfar samkvæmt samþykktri stofnskrá og hefur yfirumsjón með sjálfbærnimálum og ábyrgum starfsháttum á vettvangi stjórnarinnar.  Eitt af meginmarkmiðum sjálfbærninefndarinnar er að vinna með framkvæmdastjórn að því að setja sjálfbærnimarkmið. Sjálfbærninefndin bætist í hóp nefndanna sem fyrir eru, sem eru starfskjaranefnd, endurskoðunar- og áhættunefnd, tilnefningarnefnd og nefnd um stjórnarhætti. Smelltu á hnappinn 'Stjórn Alvotech' hér að neðan til að fræðast um meðlimi stjórnarinnar.

Viðskiptasiðferði og viðskiptahættir

Markmið Alvotech er að auka aðgengi sjúklinga að líftæknilyfjum í formi hliðstæðna á viðráðanlegra verði. Til að geta sinnt því hlutverki svo vel sé verðum við fylgja ströngustu siðareglum í öllum viðskiptum okkar og tryggja að farið sé að öllum gildandi lögum og reglugerðum. Alvotech hefur innleitt siðareglur sem gilda fyrir alla stjórnarmenn, yfirmenn og starfsfólk fyrirtækisins sem og aðra viðkomandi og tengda einstaklinga, þ.m.t. verktaka og samstarfsaðila. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á siðlega hegðun í samræmi við lög til að draga úr áhættu í viðskiptum og stuðla að áframhaldandi rekstri. Smelltu á hnappinn 'Skjöl og erindisbréf' til að skoða reglur félagsins um viðskiptasiðferði og viðskiptahætti eða önnur skjöl sem varða stjórnarhætti og nefndir stjórnar félagsins.

Uppljóstrunarstefna

Hjá Alvotech lítum við á uppljóstranir sem nauðsynlegt verkfæri til að efla ábyrgð og berjast gegn spillingu. Vel hugsað og útfært kerfi getur hvatt fólk til að tilkynna um spillta viðskiptahætti, sem aftur styrkir eftirlitskerfi Alvotech og hjálpar til við að draga úr spillingu til lengri tíma litið. Tilgangurinn með uppljóstrunarstefnu Alvotech er að skapa umhverfi innan fyrirtækisins þar sem allir yfirmenn, stjórnarmenn eða starfsmenn Alvotech geta sent inn tilkynningar í góðri trú, og án þess að óttast hefndaraðgerðir, um möguleg brot á lögum, siðareglum Alvotech eða öðrum reglum eða stefnum Alvotech af hálfu einhvers einstaklings eða aðila, þar á meðal starfsfólks fyrirtækisins eða þriðja aðila. Smelltu á hnappinn 'Skjöl og erindisbréf' til að skoða reglur félagsins um vernd uppljóstrara eða önnur skjöl sem varða stjórnarhætti og nefndir stjórnar félagsins.

Ábyrgir viðskiptahættir

Alvotech leggur áherslu á ábyrga viðskiptahætti, siðferði og sjálfbærni. Fyrirtækið fylgir leiðandi alþjóðlegum viðmiðum, þar á meðal frá Sameinuðu þjóðunum, Alþjóða vinnumálastofnuninni, EES og OECD. Alvotech væntir þess að birgjar þess virði einnig viðmið, fylgi lögum og reglum og taki þátt í að byggja upp sjálfbæra aðfangakeðju. Fyrirtækið sækist þannig eftir að mynda langtímasamband við birgja sem deila viðhorfi félagsins til ábyrgra viðskiptahátta.