

ESG gáttin
Alvotech vinnur staðfastlega að framgangi líftæknilyfjahliðstæðna þar sem þau geta stóraukið aðgengi að heilbrigðisþjónustu á og stuðlað að sjálfbærni heilbrigðiskerfa með því að bjóða upp á hagkvæmari valkost við kostnaðarsöm líftæknilyf. Þetta markmið er grunnur að framlagi fyrirtækisins til aukinnar sjálfbærni. Við höfum einnig einsett okkur að innleiða öfluga stefnu á sviði umhverfismála, félagslegra þátta og stjórnarhátta (UFS) fyrir Alvotech.
Markmið okkar er að koma líftæknilyfjahliðstæðum á markað í gegnum samstarfsfyrirtæki okkar víðs vegar um heim. Alvotech hefur breyst úr fyrirtæki sem vinnur eingöngu að rannsóknum og þróun í fyrirtæki með alla þætti þróunar og framleiðslu á einni hendi. Við leggjum áherslu á að búa til ramma utan um aðgerðir á sviði UFS sem breytist í takt við aukin umsvif á heimsvísu. Öflugur rammi um UFS getur hjálpað til við að draga úr áhættu, greina tækifæri til breytinga og styrkir samband okkar við alla hagaðila.


